Ef þú fylgist með Rvk Ritual veistu að við elskum meðgöngu, fæðingar og móðurhlutverkið í heild sinni með öllum þeim hæðum og lægðum sem því fylgja. Bókin “Frá bumbu til fæðingar” heldur  fallega utan um umbreytingar-töfra-ferlið sem það er að bera börn og fæða, sem gleymist svo oft í brjóstaþokunni.  

Við ákváðum í sameiningu að tríta tilvonandi mæður með öndun og teygjum sem við kenndum eitt sinn í meðgöngujóga og eru æfingar sem við elskum að gera sjálfar þegar við höfum verið óléttar. Hér segir Emilía höfundur bókarinnar meira frá sinni rvk ritual upplifun og hvað hugarfarið skiptir miklu máli. 

“Ég er svo ánægð að hafa fengið þær hjá rvk ritual til liðs með mér en þær eru allt sem ég vil að “Frá bumbu til fæðingar” standi fyrir. Þegar að ég var ólétt af dóttur minni var ég í meðgöngujóga hjá Evu og Dagnýju hjá rvk ritual alla meðgönguna sem var einstök upplifun og hjálpaði mér mikið, eftir það fór ég á námskeið hjá þeim og hef verið í netaðildinni þeirra um árabil, sem inniheldur alls konar hugleiðslur og öndun og líka fæðingarsögurnar þeirra! Mig hefur alltaf langað að fleiri konur fái þá upplifun sem ég fékk hjá þeim því Eva og Dagný hafa svo einstakt hugarfar þegar að það kemur að meðgöngu og í raun öllu lífinu en það er einmitt það að hugarfarið er allt. Gott hugafar og jákvæð orka kemur manni svo langt og þær eru einstaklega góðar í að kenna manni það. Í nútíma samfélagi getur oft verið erfitt að gefa sér tíma til að setjast niður og njóta þess að vera í því momenti sem maður er. Okkur langaði því að sameina krafta okkar og gefa óléttum konum tæki og tól til að bæði róa taugakerfið og liðka uppá líkamann. Njótið vel og ég mæli með að gera þetta aftur og aftur!” Emilía

ÖNDUN, HUGLEIÐSLA OG TEYGJUR Á MEÐGÖNGU

Þetta er slakandi 20 mínútna æfing sem losar um axlir, kjálka, þjálfar öndun, styrkir og róar taugakerfið.
Fullkomið fyrir óléttar konur hvenær sem er á meðgöngunni. 

AFSLÁTTARKÓÐI

Til að tríta ykkur enn meira bjóðum við ykkur 15% afsláttar kóða bæði af bókinni FRÁ BUMBU TIL FÆÐINGAR og öllum vörum RVK RITUAL  til 23 nóvember. (pssst! THE BALM er besta bumbukremið)

NOTAÐU KÓÐANN Á BÁÐUM SÍÐUM: BUMBA