PILATES NÁMSKEIÐ SÍÐDEGIS – BYRJAR 6. maí

$145.00$364.00

Hin sívinsælu 4 vikna Pilates námskeið með Margréti Weisshappel halda áfram og verða kennd kl 17:35-18:25 mánudaga og miðvikudaga í Rvk Ritual, Seljavegi 2, 3 hæð. Námskeiðið hefst mánudaginn 6. maí er í 4 vikur. Þú þarft ekki að hafa neina reynslu af pilates.

Pilates er uppskriftin að því að líta vel út að utan og að líða vel að innan. Pilates er stundum kallað „contrology“, þar sem er unnið með að stjórna hreyfingunum út frá miðju líkamans, innri kviðvöðvum og kjarnvöðvum sem styðja við hryggjasúluna. Áhersla er lögð á að styrkja miðjuna, hreyfingar í takt við öndun, teygjanleika vöðvanna og bætta líkamsstöðu með hverri æfingu fyrir sig. Pilates styrkir líkamann á hnitmiðaðan hátt, æfingarnar eru aðlagaðar að getustigi hvers og eins og því hentugar fyrir alla.

Margrét Weisshappel byrjaði að stunda pilates 16 ára en hún er með pilates kennararéttindi frá BASI Pilates Studio í Dublin. Hún hefur stóran part ævi sinnar þjáðst af bakverjum sökum hryggskekkju. Í vinnu sinni sem grafískur hönnuður þar sem mikillar setu og tölvuvinnu er krafist (eins og svo margir kannast við) hefur henni tekist að halda verkjum í skefjum með réttri líkamsbeitingu og styrkingu vöðva í kringum hrygginn, með aðferðum pilates.

Innifalið í námskeiði er aðgangur að RVK RITUAL online membership (fullt af vídjó hugleiðslum, pilates, barre, jóga ofl til að gera heima).

HVENÆR: mánudaga og miðvikudaga 17:35-18:25

HVAR: Í rvk ritual SPACE Seljavegi 2, 3 hæð

VERÐ:

4 vikur: 19.900 kr // 142$

3 Mánuðir: 49.900 kr //354$

HVAÐ ÞARF ÉG: bara sjálfa/n þig og  tilbúin í þægilegum fötum


(hægt að fá kvittun fyrir stéttarfélag)

ATH: ef afbókun berst með minni fyrirvara, þ.e. minna en 48 klukkustunda fyrirvara, áður en viðburður á sér stað
er endurgreiðsla ekki í boði en má þá nýta greiðslu sem inneign. Ekki er hægt að fá endurgreitt eftir að námskeið/viðburður hefst.